Fara í efni

Umsóknir í Vinnustaðanámssjóð - Frestur til umsókna er til 23.nóvember

Fréttir

Frestur til að sækja um vinnustaðanámsstyrkinn fyrir árið 2021 rennur út þann 23. nóvember nk. kl: 15:00.

Vinnustaðanámssjóð úthluar styrkjum til vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar í því skyni að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi. Rétt til að sækja um styrk eiga fyrirtæki og stofnanir sem uppfylla almenn skilyrði gildandi reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun um hæfi til þess að annast nemendur í starfsnámi.

Styrkur fyrir hvern nema er veittur að hámarki til 48 vikna fyrir árið allt, þó aldrei lengur en sem nemur þeim heildartíma sem krafist er í vinnustaðanámi fyrir viðkomandi nám.

Allar frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Iðunar Iðan - Umsóknir í Vinnustaðanámssjóð (idan.is)