Fara í efni

Sala nýrra fólksbíla í apríl 2023

Fréttir

FRÉTTATILKYNNING

Sala nýrra fólksbíla í apríl 2023

Sala nýrra fólksbíla í apríl jókst um 16,1% miðað við apríl í fyrra, en alls voru skráðir 1629 nýir fólksbílar nú en voru 1403 í fyrra.

Í heildina eftir fyrstu fjóra mánuði ársins hefur sala nýskráðra ökutækja aukist um 11%. Í ár hafa selst 5.129 nýir fólksbílar samanborið við 4.621 nýja fólksbíla í fyrra.

Til einstaklinga seldust 454 nýir fólksbílar í apríl samanborið við 436 á sama tíma í fyrra og er því aukning í sölu til einstaklinga 4,13% milli ára. Það sem af er ári hafa selst 2023 nýir fólksbílar til einstaklinga en í fyrra á sama tíma var sala til einstaklinga 2111 nýskráðir fólksbílar. Er því samdráttur í sölu til einstaklinga 4,17% það sem af er ári.

Almenn fyrirtæki (önnur en ökutækjaleigur) keyptu 151 nýja fólksbíla í apríl í ár miðað við að hafa keypt 143 bíla í apríl í fyrra og er því aukning þar milli ára 5,59%. Það sem af er ári hafa selst 696 nýir fólksbílar til almennra fyrirtækja en í fyrra á sama tíma voru seldir 626 nýir fólksbílar og er því aukning milli ára um 11,18%.

Ökutækjaleigur keyptu 1017 nýjan fólksbíl í apríl samanborið við 814 á sama tíma í fyrra og er því aukning um 24,94%. Það sem af er ári hafa verið skráðir 2381 nýir fólksbílar í ökutækjaleigu samanborið við 1844 bíl í fyrra. Er það aukning um 29,12% milli ára.

Hlutfall rafmagnsbíla er hæst þegar við skoðum heildarsölu eftir orkugjöfum það sem af er ári eða 40,5%. Hybrid koma þar á eftir með 20,1% af sölunni, dísel 14,1%, tengiltvinn 12,9%, og bensín 12,4% sem hlutfall sölunnar. Einnig hefur einn metan og einn vetnis fólksbíll verið seldur það sem af er ári. Ef við skoðum sölu til einstaklinga þá eru 63,3% að velja sér rafmagnsbíl. Þar á eftir kemur sala tengiltvinnbíla 13,3%, hybrid 12,6%, dísel 7,4% og bensín 3,4% sölunnar.

Í apríl var mest selda tegundin Toyota með 379 eða 23,3% selda fólksbíla, þar á eftir kemur KIA með 258 eða 15,8% selda fólksbíla og þriðja mest selda tegundin í apríl var Dacia með 190 eða 11,7% fólksbíla skráða.